Jóna Bergdal myndlistakona frá Akureyri hefur haldið fjölda einka og samsýninga hérlendis og erlendis. Hún lauk námi í Myndlistaskóla Akureyrar árið 2003 og hefur auk þess sótt allnokkur námskeið hér heima og í Noregi.
Jóna hefur fengist við ýmiskonar tækni og mikið notað akríl og olíu í sínum verkum en síðustu ár hafa vatnslitir átt hug hennar og hjarta. Það er frelsið í vatnslitunum sem heillar hana, litaflæðið og frjálsa túlkunin sem vatn og litir spinna saman. Innblástur sækir hún í náttúruna og umhverfið, einnig hafa fuglar skipað nokkuð stóran sess í myndum hennar.
Myndir Jónu hafa farið á sýningar víða og nú nýverið á sýningu í Bilbá á Spáni, Helsinki í Finnlandi og Fabriano á Ítalíu. Jóna hefur haldið á þriðja tug einkasýninga og tekið þátt í en fleiri samsýningum.