Magnús útskrifaðist frá Leiklistarskóla Íslands árið 1991. Hann hefur leikið í fjölda leiksýninga, kvikmynda og sjónvarpsþátta í gegnum tíðina og er hans þekktasta hlutverk eflaust Logi Traustason í Réttur/CASE þáttunum. Hann rekur ásamt Þorsteini Bachmann, Leiktækniskóla Magnúsar Jónssonar og Þorsteins Bachmann.
Hann hefur haldið þrjár málverkasýningar, þá síðustu í Gallerý Fold í janúar 2017. Magnús starfar jöfnum höndum sem leikari, tónlistarmaður, kennari og listmálari og leggur nú lokahönd á sína fyrstu kvikmynd “Taka 5”, í fullri lengd sem hann skrifar, framleiðir og leikstýrir. Frumsýning myndarinnar er í haustmánuðum 2018.