Hrafnhildur Inga Sigurðardóttir
Hrafnhildur Inga stundaði myndlistarnám við Myndlistaskóla Reykjavíkur 1978 og 1979, Myndlista og handíðaskóla Íslands, nú Listaháskóla Íslands, 1980-1984 og lauk þaðan prófi í grafískri hönnun.
Árin 1999 og 2000 bætti hún við sig námi í olíumálun í Myndlistarskóla Kópavogs. Hrafnhildur Inga er meðlimur í SÍM, Sambandi íslenskra myndlistarmanna og hún sat í stjórn FÍT, Félagi íslenskra teiknara.
Hrafnhildur Inga málar myndir sem lýsa skýjafari, veðurfari og sjólagi. Hún er mikið náttúrubarn og sækir myndefnið oft á sínar heimaslóðir í Fljótshlíðinni þar sem hún horfir eftir endilangri suðurströndinni þar sem skýin hrannast upp og velta sér eftir sjóndeildarhringnum og eru aldrei andartak eins.
Oft er sem himinn og jörð renni saman og lokast yfir höfði manns. Þá birtist sólin augnablik, andartaks ljósbrot. Það er meðal annars það sem hún fangar í myndum sínum.
Nám
1978-79 Myndlistarskóli Reykjavíkur
1980-84 Myndlistar og handíðaskóla Íslands
1999 -00 Myndlistarskóla Kópavogs
Einkasýningar
2002 Gallerí Skúlagata, Fyrstu leitir
2004 Hús málaranna, Utanskerja
2004 Gallerí Ormur, Útsuður
2005 Ketilhúsið, Landshorn
2007 Hafnarborg, Landbrot
2007 Skriðuklaustur, Landsýn
2008 Start Art, Í forsal vinda
2008 Gallery Ormur, Landsmót
Samsýningar
2005 Skriðuklaustur, Fjallið Snæfell
2005 Gullkistan
2005-6 Galeriazero Barcelona
2008 More North Gallery New York
2008 Stígamót
2009 Spor þúsunda kvenna, listgjörningur
1009 Garðatorg
2009 Art Vilnius Art Fair
Verkin
Vatn kemur fram í flestum myndum Hrafnhildar Ingu, ef ekki foss, þá á, lækur, gjá eða stórhættulegt kviksyndi sem lætur lítið yfir sér. Hún málar dumbunginn, lægðirnar, rokið og rigninguna en oft læðist örlítið ljósbrot með eins og til að minna á að það skiptast á skin og skúrir eins og í lífinu sjálfu.